Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorpróf vikuna 27. - 31. mars

24.03.2023 10:05

 

Vorpróf í hljóðfæraleik, söng og tónfræði verða í víkunni 27. - 31. mars n.k. 

Nemendur fá upplýsingar um próftíma og verkefni hjá kennurum sínum.

Fyrirkomulag kennslu í prófviku verður sem hér segir:

- hljóðfærakennsla/söngkennsla þeirra nemenda sem taka vorpróf fellur niður nema að kennarar hafi sent upplýsingar um annað.

- kennsla fer fram hjá þeim nemendum sem ekki taka vorpróf en stefna að áfangaprófum/tónleikaprófum í vor eða geta af einhverjum ástæðum ekki tekið vorprófin fyrr en síðar á skólaárinu.

- athugið að ekki verður í öllum tilfellum hægt að kenna samkvæmt stundaskrá og munu þá kennarar láta nemendur sína vita af nýjum tímasetningum.

Kennsla fer fram í hliðargreinum í framhaldsáföngum, samspilum, blásarasveitum og strengjasveitum samkvæmt stundaskrá.

Suzukitímar verða samkvæmt stundaskrá nema kennarar hafi sent upplýsingar um annað.

Nemendur í blásarafornámi og gítarfornámi taka ekki vorpróf og er kennsla hjá þeim samkvæmt stundaskrá.

Til baka
Hafðu samband