Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dagur tónlistarskólanna 10. febrúar 2024

31.01.2024 18:42
Dagur tónlistarskólanna 10. febrúar 2024

Dagur tónlistarskólanna er haldinn árlega í Tónlistarskóla Garðabæjar líkt og í öðrum tónlistarskólum landsins. 

Í ár er haldið upp á daginn laugardaginn 10. febrúar n.k.

Markmiðið með Degi tónlistarskólanna er að vekja athygli á fjölbreyttri og öflugri starfsemi tónlistarskólanna á landinu. 

Samspil verður meginþema dagsins og bera tónleikar dagsins þess glöggt merki. Haldnir verða 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans í Kirkjulundi 11, þar sem fram koma hljómsveitir, samspilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. 

Tónlistin er að vanda fjölbreytt og skemmtileg.

Tónleikar verða kl. 10.30, 11.00, 11.30, 13.00, 13.30, 14.00 og 14.30 í báðum sölum skólans Kirkjulundi 11.

Til baka
Hafðu samband