Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vorpróf vikuna 18. - 22. mars

18.03.2024 10:40

Vorpróf í hljóðfæraleik, söng og tónfræði verða vikuna 18. - 22. mars.

Nemendur fá upplýsingar um próftíma og verkefni hjá kennurum sínum.

 

  • Hljóðfærakennsla/söngkennsla þeirra nemenda sem taka vorpróf fellur niður nema að kennarar hafi sent upplýsingar um annað.
  • Kennsla fer fram hjá þeim nemendum sem ekki taka vorpróf en stefna að áfangaprófum/tónleikaprófum í vor eða geta af einhverjum ástæðum ekki tekið vorprófin fyrr en síðar á skólaárinu.
  • Athugið að ekki verður í öllum tilfellum hægt að kenna samkvæmt stundaskrá og munu þá kennarar láta nemendur sína vita af nýjum tímasetningum.
  • Kennsla fer fram í hliðargreinum í framhaldsáföngum, samspilum, blásarasveitum og strengjasveitum samkvæmt stundaskrá.
  • Suzukitímar verða samkvæmt stundaskrá nema kennarar hafi sent upplýsingar um annað.
  • Nemendur í blásarafornámi taka ekki vorpróf og er kennsla hjá þeim samkvæmt stundaskrá.
Til baka
Hafðu samband