Nótan 2016

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla fer nú fram í sjöunda sinn. Hátíðin er samstarfsverkefni FT félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Samtaka tónlistarskólastjóra, Tónastöðvarinnar, Töfrahurðar og Tónlistarsafns Íslands. Grunnhugsun og markmið hátíðarinnar er að þátttakendur komi frá öllu landinu, séu á öllum aldri og endurspegli ólík viðfangsefni á öllum stigum tónlistarnáms.
Fyrsti hluti uppskeruhátíðarinnar fer fram með forkeppni í hverjum tónlistarskóla og verður forkeppni Tónlistarskóla Garðabæjar haldin í sal tónlistarskólans mánudaginn 29. febrúar næstkomandi kl. 17.00.
Um 15 atriði hafa verið skráð til leiks og af þeim verða 3-4 atriði valin áfram til þátttöku í svæðistónleikum Nótunnar fyrir Kragann, Suðurland og Suðurnes. Svæðistónleikarnir fara fram í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 13. mars.
Lokahátíð Nótunnar fer fram í Eldborgarsal Hörpu, sunnudaginn 10. apríl nk.