Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nýjar reglur varðandi aðkomu foreldra/forráðamanna í Suzukikennslu til og með 3.nóvember

19.10.2020 10:07

Ákveðið hefur verið að foreldrar/forráðamenn Suzukinemenda komi ekki í hljóðfæratíma með börnum sínum næstu tvær vikurnar eða til og með 3. nóvember.

Þessi ákvörðun er tekin til að standa vörð um öryggi nemenda, foreldra/forrráðamanna, kennara og starfsemi skólans meðan hertar sóttvarnarreglur eru í gildi á höfuðborgarsvæðinu.

Hljóðfærakennararnir verða í sambandi við foreldra/forráðamenn varðandi fyrirkomulag kennslunnar á meðan þessar ráðstafanir eru í gildi.

Til baka
Hafðu samband