Skipulagsdagur mánudaginn 2. nóvember
01.11.2020 11:24
Mánudagurinn 2. nóvember verður skipulagsdagur í Tónlistarskóla Garðabæjar.
Tilkynning frá Almannavörnum 31. október 2020
Sveitafélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnarreglna stjórnvalda til varnar COVID-19.
Mánudagurinn 2. nóvember verður notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Leik- og grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið verða sendar frá skólunum til foreldra og forráðamanna um áframhald skólastarfsins. Skóla- og frístundastarf mun hefjast aftur með breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.