Gul veðurviðvörun
26.11.2020 11:02
Gul veðurviðvörun er í dag, fimmtudag og fram til kl.05.00 á morgun, föstudag.
Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í eða úr skóla og frístundastarfi. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.