Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tónlistarnæring - hádegistónleikar 6. apríl

06.04.2022 10:53
Tónlistarnæring - hádegistónleikar 6. apríl

Lilja Guðmundsdóttir sópransöngkona og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari muna næra gesti á hádegistónleikum í sal Tónlistarskólans miðvikudaginn 6. apríl kl. 12.15 - 12.45.

Þær flytja lög eftir Jóhann Helgason, Jóhann G. Jóhannsson, Hauk Tómasson, Schubert, Grieg og fleiri meistara.

Það er menningar- og safnanefnd Garðabæjar sem stendur fyrir tónleikunum í samstarfi við Tónlistarskóla Garðabæjar. Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Ólöf Breiðbjörð menningarfulltrúi.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Til baka
Hafðu samband