Dagur tónlistarskólanna 4. febrúar 2023
31.01.2023 14:41
Dagur tónlistarskólanna er haldinn árlega í Tónlistarskóla Garðabæjar líkt og í öðrum tónlistarskólum landsins. Í ár er haldið upp á daginn laugardaginn 4. febrúar n.k.
Markmiðið með Degi tónlistarskólanna er að vekja athygli á fjölbreyttri og öflugri starfsemi tónlistarskólanna í landinu.
Samspil er meginþema dagsins og bera tónleikar dagsins þess glöggt merki. Haldnir verða 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans, þar sem fram koma hljómsveitir, samspilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. Tónlistin er að vanda fjölbreytt og skemmtileg.
Tónleikar verða kl. 10.30, 11.00, 11.30, 13.00, 13.30, 14.00 og 14.30 í báðum sölum skólans.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.