Gítardeild
Kennt er á klassískan gítar og rafmagnsgítar
(sjá rythmadeild)
Klassískur gítar:
Hægt er að hefja nám á gítar frá 7 ára aldri, en er þó alltaf matsatriði og fer eftir stærð og þroska viðkomandi.
Nauðsynlegt er að nemandi eigi hljóðfæri. Við kaup á hljóðfæri er best að hafa samráð við hljóðfærakennarann.
Nám í tónlistarskóla er að stórum hluta byggt á heimanámi. Æfa þarf daglega en lengd æfingatíma er í samráði við kennara. Nemandinn þarf að geta æft sig í ró og næði. Gert er ráð fyrir að nemandi þurfi að eignast nótnabækur og nótnastand.
Stuðningur heima fyrir er nauðsynlegur í tónlistarnáminu. Öll hvatning er góð og getur skipt sköpum í náminu. Samstarf foreldra og kennara er einnig mjög mikilvægt og eru foreldrum hvattir til að hafa samband við kennarann utan hefðbundinna foreldraviðtala ef að spurningar vakna.